Lax með salsa

Hráefni
» 800 g laxaflök, roðflett og beinlaus, skipt í fjórar steikur
» 3-4 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Salsasósa með lauk og sveppum
» 1-2 stk. rauðlaukur
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
» 2-3 msk. myntulauf, söxuð
» 300 g sveppir
» 2-3 msk. matarolía
» 1 glas salsasósa, mild
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Snöggsteikið laxinn á pönnu. Kryddið með salti og pipar. Stingið í 200°C heitan ofn í 8-10 mín. Berið fram með salsasósu, lauk og sveppum.

Salsasósa með lauk og sveppum

Sneiðið lauk og sveppi og steikið í olíu. Bætið myntu, kjúklingasoði og salsasósu saman við. Sjóðið í 3-4 mínútur, bragðbætið með salti og pipar ef þurfa þykir. Setjið sósuna á diska og leggið laxastykkin ofan á.

Annað meðlæti

Soðið pasta hentar vel með þessum rétti. Reiknið með 200-250 g fyrir fjóra.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar