Lax með edikssósu, sesam og sveppum
- Hráefni
- » 800 g laxaflök, snyrt og beinlaus
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Meðlæti
- » 10 stk. vorlaukur
- » 400 g blandaðir sveppir
- » 3-4 msk. olía
- » salt og pipar
- » Sinnepsedikssósa (vinaigrette)
- » 3 dl rauðvínsedik
- » 5-6 msk. púðursykur
- » 2-3 dl matarolía
- » 2-3 msk. Worchestershiresósa
- » 3-4 msk. sesamfræ
- » 2 msk. sterkt sinnep
- » salt og pipar
Fyrir 4
Aðferð
Beinhreinsið og afhreistrið laxinn. Skerið í flökin þannig að úr verði fjórar 200 g steikur, skerið þær niður að roði en látið hanga saman. Steikið í heitri olíu í 4-5 mín. Snúið af og til, kryddið með salti og pipar. Berið fram með steiktu grænmeti og edikssósu og laufsalati.
MeðlætiSkerið grænmetið niður, steikið í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar. Skiptið á diska, leggið laxastykkin ofan á og sósuna í kringum.
Sinnepsedikssósa (vinaigrette)Brúnið sesamfræin á heitri, þurri pönnu. Blandið saman við önnur efni og hrærið hraustlega með pískara eða í matvinnsluvél.
Annað meðlætiEikarlaufssalat hentar vel með þessum rétti. Rífið gróft eikarlaufshaus og blandið saman við sneiddan rauðlauk. Sinnepsedikssósan hentar einnig vel með laufsalatinu.
Skerið rákir í roðið.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










