Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Silungur með beikoni og spergilkáli
- Hráefni
- » 8 stk. silungsflök með roði (u.þ.b. 100 g hvert)
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Meðlæti
- » 100 g beikon í strimlum
- » 2 hausar spergilkál (400 g alls)
- » 3-4 msk. matarolía
- » 4-5 dl rjómi
- » salt og pipar
Fyrir 4
Aðferð
Beinhreinsið silungsflökin ef þurfa þykir. Steikið í heitri olíu í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Kryddið með salti og pipar. Berið fram með beikoni og spergilkáli í rjómasósu.
MeðlætiSjóðið spergilkálið í léttsöltu vatni í 3-4 mín. Látið renna vel af því og skerið niður. Snöggsteikið beikonið í heitri olíu, bætið spergilkáli út í ásamt rjómanum. Sjóðið þar til rjóminn þykknar, bragðbætið með salti og pipar. Setjið hluta af sósunni á disk, leggið annað silungsflakið ofan á, afganginn af meðlætinu þar ofan á og síðara flakið efst.
Annað meðlætiBerið einnig fram smáar, soðnar kartöflur, 3-4 stk. á mann.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/348/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










