Silungur með agúrkum og engifer

Hráefni
» 800 g silungungsflök með roði, um 100 g hvert
» 3-4 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Snöggsteikt grænmeti í kjúklinga- og sojasósu
» 2 stk. agúrkur
» 3 stk. rauðlaukur
» 3 stk. gulrætur
» 3 msk. olía
» 3 msk. engifer, saxaður
» 100 g strengjabaunir í sneiðum
» 3-4 dl kjúklingasoð
» 2 dl sojasósa
» 2 msk. mynta, fersk, söxuð

Fyrir 4

Aðferð

Steikið silungsflökin í olíunni í 2-3 mín., snúið nokkrum sinnum. Berið fram með agúrkusneiðum og snöggsteiktu grænmeti í kjúklinga- og sojasósu.

Snöggsteikt grænmeti í kjúklinga- og sojasósu

Skerið agúrkuna í sneiðar, t.d. eftir endilöngu (með ostaskera), setjið á diska. Saxið annað grænmeti og snöggsteikið í olíu ásamt engifer. Bætið kjúklingasoði, sojasósu og myntu saman við. Sjóðið í 1-2 mínútur. Setjið sósu og meðlæti á miðja diska og leggið silungsflökin þar ofan á.

Annað meðlæti

Soðin hrísgrjón henta með þessum rétti. Áætlið 2-3 dl fyrir fjóra fullorðna.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar