Sesamhjúpaður silungur

Hráefni
» 800 g silungsflök með roði, beinhreinsuð, um 100 g hvert
» 3 stk. egg
» salt og pipar
» 400 g sesamfræ
» 3 msk. matarolía
» 1 haus frisesalat
» 10-12 stk. radísur
» Rauðvínsedikssósa (vinaigrette)
» 3 dl rauðvínsedik
» 2-3 dl matarolía
» 6 msk. púðursykur
» 2 msk. sterkt sinnep
» 1 tsk. timian
» 2 msk. Worchestershiresósa

Fyrir 4

Aðferð

Pískið eggin saman, kryddið með salti og pipar. Veltið flökunum upp úr eggahrærunni og síðan sesamfræjunum. Steikið í heitri olíu í 2-3 mín. Gætið þess að sesamhjúpurinn brenni ekki. Rífið salatið niður, sneiðið radísurnar, raðið á diska og leggið flökin þar ofan á. Berið sósuna fram í skál og setjið með skeið í kringum réttinn.

Rauðvínsedikssósa (vinaigrette)

Blandið öllu saman í skál og pískið saman.

Annað meðlæti

Gróft brauð hentar vel með þessum rétti.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar