Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Silungur með spínatrjóma
- Hráefni
- » 800 g silungsflök, roðflett, um 100 g hvert
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Sósa og meðlæti
- » 3 msk. matarolía
- » 10 stk. skalotlaukur
- » 250 g spínat, ferskt (stilkurinn fjarlægður)
- » 4 dl rjómi
- » 1-2 msk. sítrónusafi
- » salt og pipar
- » 8 msk. möndluflögur
Fyrir 4
Aðferð
Skerið silungsflökin í 16 litla tígla og snöggsteikið í olíu. Kryddið með salti og pipar. Haldið heitu á meðan meðlætið er útbúið. Berið síðan fram með snöggsteiktu grænmeti í rjómasósu.
Sósa og meðlætiSnöggsteikið skalotlauk og spínat í olíu, bætið rjómanum út í ásamt sítrónusafanum og sjóðið þar til sósan þykknar. Bragðbætið með salti og pipar. Léttbrúnið möndluflögurnar á þurri, heitri pönnu og stráið yfir réttinn þegar hann er borinn fram.
Annað meðlætiSoðið pasta hentar með þessum rétti. Sjóðið 200-250 g í léttsöltu vatni með örlítilli matarolíuskvettu.
Flakið snyrt ...
... beinhreinsað (ef þarf) ...
... og skorið í tígla.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/351/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










