Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Stórlúða með steiktu greipaldini og grænmeti
- Hráefni
- » 800-1000 g stórlúða (með roði), fjórar steikur
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Steikt greipaldin með grænmeti
- » 2 stk. greipaldin, rauð
- » 250 g sykurbaunir
- » 1 stk. agúrka
- » salt og pipar
- » 2 msk. matarolía
- » 150 g smjör
Fyrir 4
Aðferð
Steikið lúðustykkin í heitri olíu, kryddið með salti og pipar og stingið í 200°C heitan ofn í 8-10 mín. (eftir þykkt stykkjanna). Berið fram með steiktu greipaldini og grænmeti. Leggið lúðusteikurnar ofan á meðlætið.
Steikt greipaldin með grænmetiFlysjið greipaldinin og skerið í lauf. Flysjið agúrkuna og skerið í sneiðar (með ostaskera). Snöggsteikið sykurbaunir í heitri olíu á pönnu, bætið smjöri á pönnuna og bræðið. Setjið greipaldin og agúrku út í og hitið vel í gegn. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Annað meðlætiBerið gjarnan fram með soðnum, smáum kartöflum. Reiknið með 3-4 stk. á mann.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/354/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










