Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Stórlúðusteik með beikoni
- Hráefni
- » 800-1000 g stórlúða (fjórar steikur)
- » 8-12 stk. beikonsneiðar
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » tannstönglar
- » Perlulaukur og sveppir í rjómasósu
- » 2-3 msk. matarolía
- » 200 g sveppir
- » 300 g perlulaukur
- » 1-2 tsk. rósmarín
- » 4-5 dl rjómi
- » 3 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
- » salt og pipar
Fyrir 4
Aðferð
Roðflettið og snyrtið lúðusteikurnar. Skerið í kótilettur. Vefjið beikoni utan um og festið með tannstönglum. Snöggsteikið í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar. Setjið í 200°C heitan ofn í 8-10 mínútur. Berið fram með steiktum lauk og sveppum í rjómasósu.
Perlulaukur og sveppir í rjómasósuSkerið perlulaukana í tvennt og sveppina í sneiðar. Brúnið laukinn og bætið síðan sveppunum á pönnuna. Hellið rjómanum út á og kryddið með rósmarín. Hleypið suðunni upp. Jafnið sósuna með sósujafnara, bragðbætið með salti og pipar og sjóðið í 1-2 mínútur.
Annað meðlætiBerið fram með soðnu pasta. Sjóðið 200-250 g fyrir fjóra fullorðna.
Beinið fjarlægt.
Lúðusteikin roðflett ...
... og vafin beikoni, festið með tannstönglum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/355/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










