Ofnbökuð stórlúða

Hráefni
» 800-900 g stórlúða, roðflett og beinlaus, í 4 stykkjum
» 6 stk. tómatar
» 6 msk. pesto, grænt
» 2 stk. laukur
» 3-4 stilkar sellerí
» 1 dl rauðvín
» 3 dl rjómi
» 4 msk. sósujafnari
» 80 g parmesanostur

Fyrir 4

Aðferð

Leggið lúðustykkin í smurt eldfast mót, setjið tómatsneiðar ofaná. Saxið grænmetið og steikið í potti, bætið rauðvíni, pestó og rjóma saman við. Sjóðið í 2-3 mín., jafnið sósuna. Hellið yfir lúðuna í mótinu, leggið parmesan ost yfir (rifinn eða í sneiðum) og ofnbakið við 180°C í 25-30 mínútur.

Annað meðlæti

Sjóðið 200-250 g pasta. Hrærið saman 1 dl af balsamediki og 1 dl af ólífuolíu og vætið í pastanu þegar það er borið fram.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar