Gufusoðin smálúða með pestó og furuhnetusósu

Hráefni
» 800 g smálúða í flökum
» 2 dl vatn
» 1 tsk. salt
» safi úr 1/2 sítrónu
» Basil- og furuhnetusósa
» 8 msk. furuhnetur
» 1 msk. matarolía
» 4 msk. basil, saxað
» 1-1/2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur eða kraftur)
» 4 msk. pestó, grænt
» 4 dl rjómi
» 300-350 g aspas, grænn

Fyrir 4

Aðferð

Vefjið smálúðuflökin upp í átta rúllur festið með tannstönglum. Setjið á heita pönnu með 2 dl af vatni, bættu með salti og sítrónusafa, og gufusjóðið í 5-6 mínútur. Berið fram á miðjum diskum, setjið furuhnetusósuna yfir og um kring.

Basil- og furuhnetusósa

Léttbrúnið furuhneturnar í olíu, söxuðu basil bætt út í ásamt kjúklingasoði, pestó og aspas, sem skorinn hefur verið í 3-4 hluta. Rjómanum bætt saman við. Soðið í 3-4 mín. Þykkt með maizenamjöli eða sósujafnara ef þurfa þykir. Bragðbætið með salti og pipar.

Annað meðlæti

Berið fram með soðnum, smáum kartöflum. Áætlið 3-4 stk. á hvern fullorðinn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar