Gufusoðin smálúða með risarækju og hnetum

Hráefni
» 800 g smálúðuflök
» 2 dl vatn
» 1 tsk. salt
» safi úr 1/2 sítrónu
» Risarækja með hnetum og möndlum
» 20 stk. risarækjur
» 6 msk. furuhnetur
» 6-8 msk. heilar möndlur
» 6-8 msk. graskersfræ
» 4 msk. greipsafi (rauður)
» 4 msk. appelsínumarmelaði
» 3 msk. matarolía
» 150 g smjör

Fyrir 4

Aðferð

Vefjið smálúðuflökin upp í 8 litlar rúllur. Setjið á heita pönnu með vatni, salti og sítrónusafa og gufusjóðið undir loki í 5-6 mín. Skiptið á diska og setjið meðlætið yfir.

Risarækja með hnetum og möndlum

Hitið olíu á pönnu, bætið smjörinu saman við og látið taka lit. Léttbrúnið síðan möndlur, furuhnetur og graskersfræ. Hrærið greipsafa og marmelaði saman við - og síðast risarækjunum. Hitið í gegn.

Annað meðlæti

Berið fram með soðnum, smáum kartöflum. Áætlið 3-4 stk. á hvern fullorðinn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar