Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Steikt smálúða með rauðum vínberjum
- Hráefni
- » 800 g smálúðuflök í bitum
- » 3 msk. ólífuolía
- » salt og pipar
- » Meðlæti og sósa
- » 6 stk. skalotlaukar
- » 400 g vínber, rauð, steinlaus
- » 1 tsk. timian
- » 2 dl rauðvín
- » 2 dl kjúklingsoð
- » 4-5 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
- » 3-4 msk. ólífuolía
- » 2 msk. smjör
- » salt og pipar
Fyrir 4
Aðferð
Steikið smálúðubitana í 2-3 mín. í heitri olíu, snúið nokkrum sinnum. Setjið lok á, takið af hita og látið standa í pönnunni í 2-3 mín. áður en borið er fram. Skiptið á diska og setjið sósu og meðlæti yfir.
Meðlæti og sósaSaxið laukinn og léttsteikið, bætið síðan vínberjunum út í ásamt timian. Bætið rauðvíni og kjúklingasoði saman við og sjóðið í 1-2 mínútur. Þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara, sjóðið áfram við vægan hita í 1-2 mínútur. Setjið smjörið út í síðustu mínútuna.
Annað meðlætiBerið fram með soðnum, smáum kartöflum. Áætlið 3-4 stk. á hvern fullorðinn.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/360/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










