Rauðspretta með kóríander og soja

Hráefni
» 800 g rauðsprettuflök, roðflett og beinlaus
» 2 dl vatn
» 1 tsk. salt
» safi úr 1/2 sítrónu
» Meðlæti
» 3 stk. rauðlaukur
» 200 g spínat
» 3 msk. olífuolía
» salt og pipar
» Kóríander- og sojasósa
» 2 dl hvítvín, óáfengt
» 2 dl soja, sæt
» 2 msk. appelsínumarmelaði
» 6 msk. kóríanderlauf, söxuð

Fyrir 4

Aðferð

Blandið vatni, salti og sítrónusafa á pönnu, látið suðuna koma upp. Brjótið rauðsprettuflökin saman til helminga, sjóðið á pönnunni undir loki í 8 mínútur. Berið fram með steiktum rauðlauk og spínati og kóríander- og sojasósu; setjið fiskinn efst.

Meðlæti

Saxið rauðlauk og spínat, snöggsteikið í ólífuolíunni og kryddið með salti og pipar.

Kóríander- og sojasósa

Blandið öllum efnum saman í pott, sjóðið í 1-2 mínútur. Hellið yfir fiskinn þegar hann er borinn fram.

Annað meðlæti

Berið fram með soðnum, smáum kartöflum. Áætlið 3-4 stk. á hvern fullorðinn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar