Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Rauðspretta með mozzarellaosti
- Hráefni
- » 800 g rauðsprettuflök, roðflett og beinlaus
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » 100 g mozzarellaostur, rifinn
- » Sveppa- og hvítlaukssoðsósa
- » 350-400 g sveppir
- » 4 stk. risahvítlauksrif
- » 3 msk. ólífuolía
- » 2 dl mysa
- » 2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur eða kraftur)
- » 1 msk. sítrónusafi
- » 1 msk. salvía
- » salt og pipar
- » 2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
Fyrir 4
Aðferð
Leggið rauðsprettuflökin saman, eitt og eitt í einu, og snöggsteikið á báðum hliðum. Kryddið með salti og pipar. Stráið mozzarellaosti yfir og stingið í 200°C heitan ofn í 8-9 mín. Berið fram á sveppa- og hvítlauksjafningi.
Sveppa- og hvítlaukssoðsósaSneiðið sveppi og hvítlauk, steikið í olíu. Hellið mysu, kjúklingasoði og sítrónusafa saman við og látið suðu koma upp. Kryddið með salvíu. Þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara og sjóðið áfram í 1-2 mín. Bragðbætið með salti og pipar.
Annað meðlætiBerið fram með bökuðum kartöflum. Áætlið eina bökunarkartöflu á mann, ofnbakið við 180-200°C í 50-60 mínútur.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/362/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










