Rauðspretta með gráðaosti og lauksósu
- Hráefni
- » 800 g rauðsprettuflök, roðflett og beinlaus, í 100 g stykkjum
- » Kjúklingafars
- » 100 g kjúklingakjöt
- » 1 stk. eggjahvíta
- » 1 dl rjómi
- » 60 g gráðaostur
- » Tómatsalat
- » 4-6 stk. tómatar
- » Lauksósa
- » 6 stk. skalotlaukur
- » 2 msk. matarolía
- » 3 dl rauðvín, óáfengt
- » 3 dl kjúklingsoð (vatn og 1/2 Knorr-teningur)
- » 4 msk. graslaukur
- » 2-3 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
Fyrir 4
Aðferð
Rauðsprettan brotin saman til helminga (þannig er komið í veg fyrir að hún ofþorni við eldun) og sett í eldfast mót.
KjúklingafarsMaukið kjúklingakjötið ásamt eggjahvítunni í matvinnsluvél. Bætið rjómanum saman við, bragðbætið með salti og pipar. Skiptið maukinu á fiskstykkin ásamt bita af gráðaosti. Ofnbakað við 180°C í 12-15 mín.
TómatsalatSneiðið tómatana og þekið diskana með sneiðunum. Leggið síðan lúðustykkin ofan á.
LauksósaSaxið skalotlaukinn og brúnið lauslega í matarolíunni. Bætið rauðvíni og kjúklingasoði saman við, sjóðið í 1-2 mínútur. Þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara. Setjið sósu yfir rauðsprettustykkin og tómatsalatið þegar rétturinn er borinn fram.
Annað meðlætiBerið fram með soðnum kartöflum pasta, soðnum hrísgrjónum eða fersku salati.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










