Rauðspretta með lauk og sveppum

Hráefni
» 800 g rauðsprettuflök, roðflett og beinlaus
» Meðlæti I
» 200 g sveppir
» 2 stk. laukur
» 3 msk. matarolía
» 1 msk. smjör
» Meðlæti II
» 2 msk. matarolía
» 2 stk. laukar
» 3 stk. gulrætur
» 20 stk. sykurbaunir
» 2 dl hvítvín, óáfengt
» 3 dl kjúklingasoð (vatn og
» 1/2 Knorr-teningur)
» 2 stk. tómatar
» 4 msk. steinselja, söxuð
» 1-2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» 4 stk. savoykálblöð (eða annað blaðsalat)

Fyrir 4

Aðferð

Leggið rauðsprettuflökin tvöföld (saman brotin) á smurða ofnplötu. Ofnbakið með meðlætinu við 200°C í 8-10 mínútur.

Meðlæti I

Saxið lauk og sveppi, brúnið í olíunni, bætið smjörinu út á pönnuna. Setjið maukið ofan á rauðsprettuflökin og stingið í heitan ofn.

Meðlæti II

Skerið gulræturnar í örfína strimla, saxið lauk og sykurbaunir. Snögghitið matarolíuna og léttbrúnið lauk, gulrætur og sykurbaunir. Hellið hvítvíni og kjúklingasoði á pönnuna, sjóðið í 2-3 mínútur. Þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara. Bætið steinseljunni út í.

Fjarlægið stilkinn af savoykálinu, sjóðið laufin í léttsöltu vatni í 4-5 mín. Búið til kramarhús, fyllið með grænmetismaukinu og bakið ásamt rauðsprettunni.

Annað meðlæti

Gróft brauð hentar vel með þessum rétti.

Stilkurinn fjarlægður úr savoykálinu.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar