Rauðspretta með grænmetisstrimlum
- Hráefni
- » 800 g rauðsprettuflök, roðflett og beinlaus
- » 3 msk. olía
- » salt og pipar
- » Meðlæti
- » 2 msk. matarolía
- » 2-3 stk. gulrætur
- » 4 stk. belgbaunir
- » 1/2 stilkur blaðlaukur
- » 100 g sykurbaunir
- » 4 blöð savoykál (eða annað blaðsalat)
- » 1-2 dl kjúklingsoð (vatn og teningur eða kraftur)
- » 1 msk. rósmarín
- » 1 msk. sítrónusafi
- » salt og pipar
- » Sósa
- » 6 stk. skalotlaukar
- » 2-3 msk. matarolía
- » 1 dl hvítvín, óáfengt
- » 1 dl kjúklingasoð (vatn og teningur eða kraftur)
- » 3 dl rjómi
- » 50 g smjör
- » 1-2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
Fyrir 4
Aðferð
Brjótið hvert rauðsprettuflak í tvennt og steikið á báðum hliðum í heitri olíu. Ofnbakið síðan við 200°C í 8-10 mín.
MeðlætiFjarlægið stilkana úr savoykálinu og sjóðið í 4-5 mín. í léttsöltu vatni. Fletjið kálið á diska. Saxið grænmetið smátt eða í strimla, snöggsteikið í olíu. Bætið kjúklingasoði, rósmarín og sítrónusafa á pönnuna, sjóðið alveg niður. Bragðbætið með salti og pipar ef þurfa þykir. Leggið rauðsprettuflökin á kálið og grænmetið í kring.
SósaSteikið laukinn í olíunni, brúnið ekki. Bætið hvítvíni og kjúklingasoði á pönnuna, sjóðið í 1-2 mín. og bætið þá rjómanum saman við. Þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara og pískið síðan smjörið saman við áður en sósan er borin fram.
Annað meðlætiGróft brauð hentar vel með þessum rétti.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










