Rauðspretta með kjúklingafarsi

Hráefni
» 600-800 g rauðsprettuflök, roðflett og beinlaus
» Kjúklingafars
» 100 g kjúklingakjöt, magurt
» 1 stk. eggjahvíta
» 1 dl rjómi
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Meðlæti og sósa
» 8 stk. skalotlaukar
» 4 stk. belgbaunir
» 200 g sveppir
» 3 msk. matarolía
» 2 dl rauðvín, óáfengt
» 1 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
» 1/2 tsk. oregano
» 1 msk. sítrónusafi
» 2 dl rjómi
» 1 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» 4 msk. steinselja, fersk, söxuð

Fyrir 4

Aðferð

Maukið kjúklingakjötið í matvinnsluvél ásamt eggjahvítunni. Bætið rjómanum út í ásamt salti og pipar. Smyrjið maukinu á rauðsprettuflökin og leggið þau síðan saman. Snöggsteikið á báðum hliðum og ofnbakið við 200°C í 15 mín.

Meðlæti og sósa

Skerið lauk og belgbaunir í strimla, léttsteikið í olíunni, brúnið ekki. Bætið öðru grænmeti saman við og látið krauma í eina mínútu. Bætið þá rauðvíni, kjúklingasoði, kryddi og sítrónusafa á pönnuna. Sjóðið í 2-3 mínútur, hellið þá rjómanum út á og jafnið með maizenamjöli eða sósujafnara. Setjið á diska undir rauðsprettuflökin og stráið steinselju yfir.

Annað meðlæti

Berið fram soðið pasta með þessum rétti. Reiknið með 200-250 g fyrir fjóra fullorðna.

Rauðsprettuflökin roðflett ...

... og snyrt.

Leggið saman utan um fyllinguna.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar