Gufusoðin ýsa með ostrusoja

Hráefni
» 800 g ýsuflök, roðflett og beinlaus
» 2 dl vatn
» 1 tsk. salt
» safi úr 1/2 sítrónu
» Baunaspírur og hnetur í myntusósu
» 2-3 msk. mynta, fersk, söxuð
» 3 dl vatn
» 2 dl ostrusojasósa
» 2 msk. appelsínumarmelaði
» 2 bakkar baunaspírur
» 4 msk. furuhnetur

Fyrir 4

Aðferð

Rúllið ýsuflökunum upp í fjórar 200 g rúllur. Sjóðið vatnið með salti og sítrónusafa og gufusjóðið ýsurúllurnar undir loki í 6 mínútur. Berið fram með baunaspírum, steiktum furuhnetum og sósu.

Baunaspírur og hnetur í myntusósu

Léttbrúnið furuhneturnar á heitri, þurri pönnu. Bætið öðrum efnum út á og sjóðið í 1-2 mínútur. Setjið sósuna með skeið yfir ýsurúllurnar þegar rétturinn er borinn fram.

Annað meðlæti

Soðin hrísgrjón henta vel. Sjóðið 2-3 dl í léttsöltu vatni 18-20 mínútur.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar