Ítölsk ýsa með mozzarellaosti

Hráefni
» 800 g ýsuflök, roðflett, beinlaus
» 2-3 msk. matarolía til steikingar
» salt pipar
» Ítölsk sósa
» 1 dós tómatar, niðursoðnir (400 g)
» 1 stk. kjúklingateningur (Knorr)
» 1 tsk. Provence krydd (frá Pottagöldrum)
» 2 msk. steinselja, fersk, söxuð
» 150 g beikon
» 1 poki mozzarellaostur, kryddaður

Fyrir 4

Aðferð

Steikið ýsubitana í heitri olíu, kryddið með salti og pipar. Stingið í 200°C heitan ofn í 5-6 mínútur. Berið fram með ítalskri sósu.

Ítölsk sósa

Steikið beikonið stökkt á pönnu. Setjið á servíettu eða eldhúsbréf og látið drjúpa af því. Setjið tómata, steinselju og krydd í hakkavél eða matvinnsluvél og maukið. Setjið í pott og sjóðið í 1-2 mínútur. Ausið sósunni yfir ýsuna, brjótið beikonið yfir og stráið rifnum osti yfir allt saman.Annað meðlæti

Berið fram soðið pasta með þessum rétti. Reiknið með 200-250 g fyrir fjóra fullorðna. Gróft brauð hentar einnig vel.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar