Ýsa með spínati og portobellosveppum

Hráefni
» 800 g ýsuflök, roðflett og beinlaus
» 2-3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Spínat- og sveppatvenna
» 200 g spínat
» 2 stk. portobellosveppir
» 4-5 stk. tómatar
» 1 tsk. timian
» 2 msk. sítrónusafi
» 3 msk. matarolía
» 100-150 g smjör
» salt og pipar
» Ferskt laufsalat
» 1 haus eikarlaufssalat
» 1 haus Lollo Rosso
» 1 stk. rauðlaukur, sneiddur
» Rífið salatið niður og blandið vel ásamt rauðlauknum.
» Sinnepsedikssósa
» 1 dl rauðvínsedik
» 1 msk. dijon sinnep
» 1 msk. ólífuolía
» Hrærið vel saman og bragðbætið með salti og pipar.

Fyrir 4

Aðferð

Steikið ýsuna á báðum hliðum í heitri olíu í 5-6 mín., bragðbætið með salti og pipar. Haldið heitu á meðan meðlætið er sett saman. Berið fram með spínati og sveppum, fersku salati og sinnepsedikssósu.

Spínat- og sveppatvenna

Hitið olíuna vel á pönnu, bætið smjörinu saman við og léttbrúnið. Setjið nú sneidda sveppi og tómata, spínat, krydd og sítrónusafa út á pönnuna og hitið vel í gegn. Skiptið ofan á ýsubitana um leið og þeir eru bornir fram.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar