Ýsurúlla með gráðaostasósu

Hráefni
» 800 g ýsuflök, roðflett og beinlaus
» 2 dl vatn
» 1 tsk. salt
» safi úr 1/2 sítrónu
» Gráðaostasósa
» 200 g rækjur
» 3 stk. lárperur (avokado)
» 6 msk. möndluflögur
» 100 g gráðaostur
» 3 dl rjómi
» 30 g dill, ferskt (1 pottur), eða 3 tsk. þurrkað
» 1-2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari

Fyrir 4

Aðferð

Sjóðið saman á pönnu vatn, sítrónusafa og salt. Rúllið ýsuflökunum upp og gufusjóðið undir loki í 5-6 mínútur. Haldið heitu.

Gráðaostasósa

Léttbrúnið möndluflögurnar á heitri, þurri pönnu. Blandið vel saman við gráðaost, rjóma og dill, hitið að suðu. Þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara.

Afhýðið lárperuna og skerið í báta. Bætið út í sósuna ásamt rækjunum þegar borið er fram.

Annað meðlæti

Berið fram með grófu brauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar