Pönnusteikt ýsa með paprikusósu

Hráefni
» 800 g ýsuflök, roðflett og beinlaus
» 3 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» 3-4 stk. paprikur, rauðgular
» Paprikusósa
» 3-4 stk. paprikur, rauðgular
» 1 stk. kjúklingateningur (Knorr)
» 1 peli rjómi
» 1-2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari

Fyrir 4

Aðferð

Meðlæti

Skerið flökin í hæfilega stóra bita og steikið á báðum hliðum. Bragðbætið með salti og pipar. Skerið paprikurnar í teninga. Setjið fiskstykkin á miðja diska og berið fram með paprikusósu og ferskum paprikuteningum.

Paprikusósa

Blandið öllu (nema sósujafnaranum) vel saman, t.d. í matvinnsluvél, og setjið yfir til suðu. Látið sjóða í 1-2 mín., þykkið með sósujafnara.

Annað meðlæti

Soðið pasta passar vel við þennan rétt. Sjóðið 200-250 g í léttsöltu vatni fyrir fjóra fullorðna.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar