Hörpuskelfiskur í spergilkálssósu

Hráefni
» 800-1000 g hörpuskelfiskur
» Spergilkálssósa
» 1-2 hausar spergilkál
» 3 dl rjómi
» 1 stk. kjúklingateningur (Knorr)
» 2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» 8 msk. möndluflögur

Fyrir 4

Aðferð

Maukið/hakkið spergilkálið ásamt rjóma og kjúklingateningi. Hitið að suðu og þykkið með sósujafnaranum. Bætið hörpuskelinni út í og sjóðið áfram í 1-2 mínútur.

Léttbrúnið möndluflögurnar á heitri, þurri pönnu, og stráið yfir réttinn þegar hann er borinn fram.

Annað meðlæti

Berið fram með smáum, soðnum kartöflum. Reiknið með 3-4 stk. á mann. Smjörsteiktar kartöflur eru einnig góður kostur (snöggsoðnar fyrst, flysjaðar og síðan pönnusteiktar í smjöri þar til þær fá fallegan lit).

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar