Sesamhjúpaður humar

Hráefni
» 800-1000 g humar, skelflettur
» 100 g sesamfræ
» 1/2 dl grillsósa (BBQ) (hunangssósa)
» 3-4 msk. matarolía
» 4 stk. trépinnar
» Sveppa- og rauðlaukssósa
» 3 msk. matarolía
» 250 g sveppir
» 2 stk. rauðlaukur
» 1 dl grillsósa (BBQ)
» 4 dl rjómi
» 2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari

Fyrir 4

Aðferð

Þræðið humarinn upp á trépinna, penslið með grillsósunni og veltið upp úr sesamfræjunum. Snöggsteikið á báðum hliðum og stingið í 200°C heitan ofn í í 2-3 mín. Berið fram með sveppa- og rauðlaukssósunni.

Sveppa- og rauðlaukssósa

Sneiðið rauðlauk og sveppi og steikið í olíunni. Bætið grillsósu og rjóma út í. Sjóðið í 2-3 mín., þykkið með sósujafnaranum og sjóðið áfram í 2 mínútur.

Annað meðlæti

Berið fram með grófu brauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar