Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Humarhalar með engifersteiktu grænmeti
- Hráefni
- » 800 g humar, skelflettur
- » 2 msk. smjör
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Engifersteikt grænmeti
- » 8 stk. belgbaunir
- » 1 bakki smámaís
- » 2 hausar spergilkál (300 g)
- » 1 bakki blandaðar baunir, spíraðar
- » 80 g sykurbaunir
- » 2-3 msk. engifer, saxaður
- » 6 stk. hvítlauksrif, söxuð
- » 1-2 dl kjúklingsoð (vatn og teningur/kraftur)
- » 1-2 msk. sítrónusafi
- » 100 g smjör
- » 3-4 msk. matarolía
Fyrir 4
Aðferð
Snöggsteikið humarinn í matarolíu og smjöri, bragðbætið með salti og pipar. Leggið ofan á engifersteikta grænmetið og berið fram heitt.
Engifersteikt grænmetiSkerið belgbaunir, maís, spergilkál, baunir og hvítlauksrif smátt, engifer mjög smátt og snöggsteikið allt í olíu á vel heitri pönnu. Kryddið með salti og pipar. Bætið kjúklingasoði og sítrónusafa saman við og sjóðið alveg niður. Bætið þá smjörinu saman við.
Annað meðlætiBerið gjarnan fram með soðnum, hvítum hrísgrjónum. Reiknið með 2-3 dl fyrir fjóra fullorðna.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/375/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










