Lambakjötsstrimlar með villijurtum

Hráefni
» 600-800 g beinlaust lambakjöt
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Sósa og meðlæti
» 2 stk. rauðlaukur
» 200 g blandaðir sveppir
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og
» 1/2 Knorr-teningur)
» 2 msk. tómatmauk
» 1 peli rjómi
» 1 msk. villijurtakrydd (frá Pottagöldrum)
» 1 msk. sítrónusafi
» 4 msk. steinselja, fersk eða þurrkuð
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Skerið lambakjötið í strimla, snöggsteikið í heitri olíu. Bragðbætið með salti og pipar, setjið til hliðar.

Sósa og meðlæti

Skolið pönnuna, látið olíu á hana aftur. Saxið rauðlauk og skerið sveppina gróft, snöggsteikið í 2 mínútur. Bætið þá kjúklingasoði, tómatmauki, rjóma og sítrónusafa út í. Sjóðið í 3-4 mínútur. Skiptið á diska og setjið lambastrimlana út á. Sáldrið saxaðri steinselju yfir réttinn þegar hann er borinn fram.

Annað meðlæti

Borið fram með grófu brauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar