Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Lambastrimlar í sætri sojasósu
- Hráefni
- » 600-800 g beinlaust lambakjöt
- » 3 msk. matarolía
- » salt og pipar
- » Grænmetisblanda í sojasósu
- » 200 g ferskt spínat
- » 1/2 stk. blaðlaukur
- » 200 g spergilkál (ferskt eða fryst)
- » 100 g cherrytómatar
- » 3 dl kjúklingasoð (vatn og
- » 1/2 Knorr-teningur)
- » 1 dl sojasósa, sæt
- » 1 msk. kóríanderlauf, söxuð
- » Meðlæti
- » 200-250 g hrísgrjón
Fyrir 4
Aðferð
Skerið kjötið í strimla. Snöggsteikið í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar. Eftir eina mínútu er söxuðu og gróft skornu grænmeti bætt á pönnuna og steikt áfram í tvær mínútur. Bætið síðan sojasósu og kjúklingasoði á pönnuna ásamt heilum cherrytómötum og kóríanderlaufum. Látið suðuna koma upp og berið fram strax.
MeðlætiBerið fram með soðnum hrísgrjónum. Sjóðið skv. leiðbeiningum á pakka.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/377/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










