Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Lambastrimlar með fíkjum og rúsínum
- Hráefni
- » 800 g beinlaust lambakjöt
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » 1-2 msk. smjör
- » 200 g fíkjur, þurrkaðar
- » 100 g rúsínur
- » 400 g grænar baunir, frystar
- » 4 dl kjúklingasoð (vatn og teningur eða kraftur)
- » 1-2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
- » salt og pipar
- » Meðlæti
- » 12-16 stk. litlar kartöflur
- » gróft brauð
Fyrir 4
Aðferð
Skerið kjötið í strimla og snöggsteikið í heitri olíu. Bragðbætið með salti og pipar. Bætið ávöxtum og grænmeti á pönnuna, léttbrúnið allt. Hellið þá kjúklingasoði yfir og sjóðið í
1 mínútu. Þykkið með sósujafnara. Sjóðið áfram í 2-3 mínútur.
MeðlætiBerið fram með grófu brauði og soðnum kartöflum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/379/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










