Lambakótilettur með myntu og kapers

Hráefni
» 1200 g lambakótilettur
» 3 msk. olía til steikingar
» salt og pipar
» Myntu- og kaperssósa
» 2 stk. laukur
» 1 glas kapers (113 g)
» 4 msk. myntulauf, fersk
» 12 stk. belgbaunir
» 4 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
» 2 msk. sósujafnari
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Meðlæti
» 4 stk. bökunarkartöflur

Fyrir 4

Aðferð

Steikið lambakótiletturnar á báðum hliðum í heitri olíu í 3-4 mín., bragðbætið með salti og pipar. Haldið heitum í 150°C heitum ofni.

Myntu- og kaperssósa

Skerið laukinn í sneiðar og brúnið á pönnu. Bætið kapers, söxuðum myntulaufum og belgbaunum í strimlum á pönnuna og steikið. Hellið kjúklingasoðinu saman við, þykkið með sósujafnara, sjóðið í 1-2 mínútur. Skiptið sósunni á diska og leggið kótiletturnar ofan á.

Meðlæti

Bakið kartöflurnar í 45-60 mínútur við 180-200°C eftir stærð.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar