Lambakótilettur með kryddjurtum og blönduðum baunum

Hráefni
» 1200 g lambakótilettur
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Meðlæti og sósa
» 1 stk. laukur
» 6 stk. hvítlauksrif
» 100 g sykurbaunir
» 12 stk. belgbaunir
» 1 msk. Provence krydd (frá Pottagöldrum)
» 1 dl hvítvín (óáfengt)
» 4 dl kjúklingasoð
» 1 msk. smjör
» 3 msk. matarolía
» Annað meðlæti
» 4 stk. bökunarkartöflur

Fyrir 4

Aðferð

Steikið lambakótiletturnar í olíu í 3-4 mín., veltið annað slagið. Bragðbætið með salti og pipar. Haldið heitum í 150°C heitum ofni.

Meðlæti og sósa

Sjóðið belgbaunirnar í 3 mín. í léttsöltu vatni. Saxið lauk og hvítlauk. Brúnið laukinn í heitri olíu, bætið hvítlauknum út í og síðan belg- og sykurbaununum ásamt kryddi, kjúklingasoði og hvítvíni. Sjóðið áfram í 2-3 mínútur. Setjið smjörið út í rétt áður en rétturinn er borinn fram.

Annað meðlæti

Bakið kartöflurnar í 45-60 mínútur við 180-200°C eftir stærð.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar