Lambakótilettur með rifsberjasósu

Hráefni
» 1200 g lambakótilettur
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Rifsberjasósa
» 100 g rifsber
» 3 msk. vatn
» 2 msk. rifsberjahlaup
» 3 dl kjúklingasoð (vatn og 1/2 Knorr-teningur)
» 1 pakki rauðvínssósa (t.d. Knorr eða Toro)
» 1 stk. kúrbítur (zucchini), grænn
» 12 stk. vorlaukar
» 6 msk. sykur
» 1 dl rauðvínsedik
» 2 msk. smjör
» 1 tsk. timian
» Meðlæti
» 12-16 stk. kartöflur, smáar

Fyrir 4

Aðferð

Steikið lambakótiletturnar á báðum hliðum í heitri olíu í 3-4 mín., bragðbætið með salti og pipar. Haldið heitum í 150°C heitum ofni.

Rifsberjasósa

Sjóðið vorlaukinn í léttsöltu vatni í 3 mínútur.

Blandið saman sykri, vatni og rifsberjum og sjóðið þar til sykurinn er orðinn að karamellu. Bætið þá rauðvínsediki saman við ásamt kjúklingasoði og rifsberjahlaupi og síðan rauðvínssósuduftinu. Blandið síðan smjöri og timian saman við og sjóðið í 2-3 mínútur. Skerið kúrbítinn í teninga og sjóðið með, ásamt vorlauknum, síðustu 2-3 mínúturnar.

Annað meðlæti

Borið fram með soðnum eða sykurbrúnuðum kartöflum. Reiknið með 3-4 stk. á hvern fullorðinn.

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar