Lambafilet með krækiberjasósu og rauðkáli

Hráefni
» 800 g lambafilet, í 200 g steikum
» 3 msk. olía
» Rauðkál í krækiberjasósu
» 2-3 msk. matarolía
» 2 stk. laukur
» 400-500 g rauðkál, nýtt
» 6-8 dl rauðvín (óáfengt)
» 1 msk. villijurtir í púrtvíni (frá Pottagöldrum)
» 4 stk. lárviðarlauf
» 1 dl krækiberjasaft
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
» 2-3 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» Meðlæti
» 12-16 stk. kartöflur, smáar

Fyrir 4

Aðferð

Brúnið kjötið vel í olíu á pönnu. Kryddið með salti og pipar. Setjið í 200°C heitan ofn í 6 mínútur, takið út úr ofninum, látið standa í 3 mín. og setjið aftur inn í aðrar 3 mínútur. Berið fram með rauðkáli og krækiberjasósu.

Rauðkál í krækiberjasafa

Skerið laukinn í sneiðar og rauðkálið í strimla. Steikið í olíu í 12 mínútur. Bætið þá kryddjurtum og öllum vökvanum saman við og sjóðið við vægan hita í 8-10 mínútur. Þykkið með sósujafnaranum og sjóðið áfram í 2-3 mín. Setjið sósuna og kálið á miðja diska, skerið hverja steik í fjóra bita og raðið snyrtilega niður.

Meðlæti

Berið fram með soðnum kartöflum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar