Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Lambafilet með hvítlaukssveppasósu
- Hráefni
- » 800 g lambafilet (í fjórum 200 g steikum)
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Hvítlaukssveppasósa
- » 1 stk. laukur
- » 6 stk. hvítlauksrif
- » 200 g ferskir sveppir
- » 3 msk. matarolía
- » 4 dl kjúklingasoð
- » 2 tsk. villijurtakrydd (frá Pottagöldrum)
- » 1 dl hvítvín, óáfengt
- » 4 msk. steinselja, fersk
- » 2-3 msk. smjör
- » 2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
- » salt og pipar
- » Meðlæti
- » 12-16 stk. kartöflur, smáar
Fyrir 4
Aðferð
Snöggsteikið lambafilet á vel heitri pönnu, bragðbætið með salti og pipar. Stingið í 200°C heitan ofn í 6 mínútur, takið úr ofninum og hvílið steikurnar í 3 mín. Setjið aftur í ofninn í aðrar 3 mínútur. Skerið horn í horn og berið fram með hvítlaukssveppasósu og soðnum kartöflum.
HvítlaukssveppasósaSneiðið lauk og sveppi, saxið hvítlauk og steinselju. Léttbrúnið lauk ásamt hvítlauk og sveppum. Bætið hvítvíni, kjúklingasoði og jurtakryddi út í og sjóðið í 2-3 mín. Þykkið með sósujafnara, bætið smjöri og steinselju út í.
MeðlætiBerið fram með soðnum kartöflum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/387/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










