Lambafilet með ólífum og blönduðum sveppum

Hráefni
» 800 g lambafilet í 200 g steikum
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Meðlæti og sósa
» 400 g blandaðir sveppir, ferskir
» 200 g ólífur, svartar
» 1 stk. laukur
» 6 stk. hvítlauksrif
» 2 tsk. villijurtakrydd (frá Pottagöldrum)
» 5 dl rjómi
» 1/2 dl soja, sæt
» 2-3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Annað meðlæti
» 4 stk. bökunarkartöflur

Fyrir 4

Aðferð

Snöggsteikið lambafilet á vel heitri pönnu, bragðbætið með salti og pipar. Stingið í 200°C heitan ofn í 6 mínútur, takið úr ofninum og hvílið steikurnar í 3 mín. Setjið aftur í ofninn í aðrar 3 mínútur. Skerið til helminga, berið fram með meðlæti og sósu og bökuðum kartöflum.

Meðlæti og sósa

Sneiðið laukinn, saxið hvítlaukinn. Léttbrúnið í heitri olíu, bætið ólífum og heilum sveppum á pönnuna. Steikið í 1-2 mín., bætið þá kryddi, rjóma og sojasósu saman við. Sjóðið í 3-4 mínútur.

Annað meðlæti

Bakið kartöflurnar við 180-200°C í 45-60 mínútur (eftir stærð).

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar