Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Lambafilet með papriku og rauðu karrý
- Hráefni
- » 800 g lambafilet (í fjórum 200 g steikum)
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Papriku- og karrýsósa
- » 5 stk. paprikur (græn, gul og rauðgul)
- » 1 stk. laukur
- » 2-3 msk. karrý, rautt
- » 2 dl kjúklingasoð (vatn og
- » 1/2 Knorr-teningur)
- » 2 msk. apríkósumarmelaði
- » 2-3 msk. matarolía
- » 4-5 msk. smjör
- » salt og pipar
- » Meðlæti
- » 12-16 stk. kartöflur, smáar
Fyrir 4
Aðferð
Snöggsteikið lambafilet á vel heitri pönnu, bragðbætið með salti og pipar. Stingið í 200°C heitan ofn í 6 mínútur, takið úr ofninum og hvílið steikurnar í 3 mín. Setjið aftur í ofninn í aðrar 3 mínútur. Skerið í þrjá jafna bita og berið fram með papriku- og karrýsósunni og soðnum kartöflum.
Papriku- og karrýsósaSkerið paprikuna í teninga, laukinn í sneiðar, léttsteikið í olíunni og bætið svo karrýinu út í. Blandið vel saman, bætið síðan kjúklingasoði, marmelaði og smjöri saman við. Bragðbætið með salti og pipar.
MeðlætiBorið fram soðnum kartöflum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/390/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










