Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Svínakjöt með spergli og rauðri berjasósu
- Hráefni
- » 600-800 g beinlaust svínakjöt (snitzel eða innralæri)
- » 1/2 stk. blaðlaukur
- » 16 stk. ferskur spergill, grænn
- » 3-5 msk. matarolía
- » salt og pipar
- » Rauð berjasósa
- » 100 g jarðarber
- » 50 g rifsber
- » 1 dl rauðvínsedik
- » 2 msk. Worcestershiresósa
- » 1 msk. púðursykur
- » 2 dl olía
- » 1 dl kjúklingasoð
- » Meðlæti
- » gróft brauð
Fyrir 4
Aðferð
Skerið kjötið í strimla, snöggsteikið á heitri pönnu í 2 mínútur, kryddið með salti og pipar. Sjóðið spergilinn í léttsöltu vatni í 3 mínútur (sjá verkun á spergli í þessari uppskrift). Hreinsið blaðlaukinn og skerið í strimla. Bætið spergli og blaðlauk á pönnuna, steikið í 1-2 mín. til viðbótar. Berið fram með rauðu berjasósunni (kaldri) og fersku salati.
Rauð berjasósaAllt sett í matvinnsluvélina og maukað. Hellt í kringum réttinn.
MeðlætiGott er að bera gróft brauð fram með þessum rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/391/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










