Svínahnakki með kóríander

Hráefni
» 800 g svínahnakkasneiðar, beinlausar (fjórar jafn stórar)
» 3 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Kóríandersósa
» 3 msk. matarolía
» 200 g sveppir
» 200 g sykurbaunir
» 2 stk. hvítlaufssalat (endívur)
» 8 stk. vorlaukur
» 3 dl súrsæt sósa (t.d. La Choy Sweet and Sour)
» 2 msk. kóríanderlauf
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og
» 1/2 Knorr-teningur)
» 4 msk. hjartahnetur (cashewhnetur)
» Meðlæti
» 200-250 g hrísgrjón

Fyrir 4

Aðferð

Steikið svínahnakkasneiðarnar á pönnu í 8 mínútur, snúið af og til. Bragðbætið með salti og pipar. Setjið á miðja diska og berið fram með kóríandersósu og soðnum hrísgrjónum.

Kóríandersósa

Sjóðið vorlaukana í léttsöltu vatni í 2-3 mínútur. Skerið sveppi í teninga, sykurbaunir og hvítlaufssalat í strimla. Hitið olíuna og steikið grænmetið í olíunni. Bætið súrsætu sósunni saman við og síðan söxuðum kóríanderlaufum, hjartahnetum og kjúklingasoði. Sjóðið áfram í 1-2 mínútur.

Meðlæti

Soðin hrísgrjón henta vel með þessum rétti, sjóðið skv. leiðbeiningum á pakka.

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar