Svínahnakki með skelfiski

Hráefni
» 800 g svínahnakkasteikur
» (4 sneiðar, beinlausar)
» 3 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Skelfiskur í sinnepsrjómasósu
» 200 g humar, skelflettur
» 200 g hörpuskelfiskur
» 1 msk. dijon sinnep
» 250 g spergilkál (fryst)
» 4 stk. hvítlauksrif
» 2 dl hvítvín, óáfengt
» 3 dl rjómi
» 2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» 2 msk. matarolía
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Pönnusteikið svínasteikurnar í 8 mín., snúið af og til, bragðbætið með salti og pipar. Berið fram með skelfiski, sinnepsrjómasósu og grófu brauði.

Skelfiskur í sinnepsrjómasósu

Hitið olíuna, saxið hvítlaukinn og skellið á pönnuna ásamt humri, hörpuskel og spergilkáli. Bætið hvítvíni og rjóma út á ásamt sinnepinu. Látið suðuna koma upp og þykkið strax með sósujafnaranum. Sjóðið í 1 mínútu og hellið yfir steikurnar.

Annað meðlæti

Gróft brauð hentar vel með þessum rétti.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar