Svínalundir með hnetu- og graskerssósu

Hráefni
» 800 g svínalundir, skornar í 12 steikur
» 4-5 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Hnetu- og graskerssósa
» 4 msk. furuhnetur
» 4 msk. möndlur, hýðislausar
» 4 msk. hjartahnetur (cashewhnetur)
» 4 msk. graskersfræ
» 200 g sykurbaunir
» 6 msk. rúsínur
» 100 g smjör
» 1/2 dl sojasósa, sæt
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og
» 1/2 Knorr-teningur)
» 3 msk. matarolía
» Meðlæti
» 4 stk. bökunarkartöflur

Fyrir 4

Aðferð

Steikið kjötið í heitri olíu í 4-5 mínútur. Snúið af og til, bragðbætið með salti og pipar. Setjið þrjár steikur á hvern disk og hellið hnetu- og graskerssósunni yfir.

Hnetu- og graskerssósa

Hitið olíu á pönnu og setjið í hana furuhnetur, möndlur, hjartahnetur, graskersfræ, sykurbaunir og rúsínur. Allt léttbrúnað. Bætið smjörinu á pönnuna og þegar það hefur bráðnað er sojasósu og kjúklingasoði hellt saman við. Soðið í 1-2 mínútur.

Meðlæti

Gott að bera bakaðar kartöflur fram með þessum óvenjulega rétti. Bakið þær við 180-200°C í 45-60 mínútur eftir stærð.

Himnan fjarlægð af lundinni, sem síðan er skorin í hæfilega þykkar steikur (2-3 cm).

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar