Svínasnitzel með ólífum og pepperoni

Hráefni
» 800 g svínasnitzel
» 3 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» 80 g mozzarellaostur, rifinn
» (1/2 poki)
» Steiktar ólífur með pepperoni
» 150 g pepperoni, í sneiðum
» 200 g ólífur, svartar og grænar
» 2 stk. rauðlaukur
» 3-4 sneiðar skinka
» 2-3 stk. hvítlauksrif
» 2-3 msk. matarolía
» Ítölsk sósa
» 2 dl pastasósa
» 1 tsk. oregano
» 1 dl hvítvín, óáfengt

Fyrir 4

Aðferð

Steikið kjötið í 6-7 mín., snúið af og til, bragðbætið með salti og pipar. Setjið á miðjan disk, setjið steiktu ólífurnar yfir, sósuna þar ofan á og dreifið að lokum rifnum osti yfir allt saman.

Steiktar ólífur með pepperoni

Skerið skinku og rauðlauk í strimla, saxið hvítlauksrifin. Hitið olíuna á pönnu og brúnið allt saman - bætið svo pepperonisneiðunum heilum saman við.

Ítölsk sósa

Blandið saman pastasósu, hvítvíni og oregano, sjóðið í eina mínútu eða svo og hellið síðan yfir réttinn.

Meðlæti

Hér hentar gróft brauð einstaklega vel.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar