Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Svínahnakki með steiktu grænmeti
- Hráefni
- » 800 g svínahnakki (fjórar 200 g steikur)
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Steikt grænmeti
- » 200 g perlulaukur, ferskur eða frystur
- » 1 stk. kúrbítur (zucchini)
- » 2 stk. gulrætur
- » 200 g sveppir
- » 8-10 stk. hvítlauksrif
- » 6 stk. ferskur spergill, grænn
- » 4 msk. fersk steinselja
- » 1 dl hvítvín, óáfengt
- » 3 msk. matarolía
- » 100 g smjör
- » Meðlæti
- » 12-16 stk. kartöflur, smáar
Fyrir 4
Aðferð
Steikið kjötið í 6-7 mín., snúið af og til, bragðbætið með salti og pipar. Setjið á miðjan disk.
Steikt grænmetiSkerið grænmetið í sneiðar og brúnið í heitri olíu. Setjið perlulaukinn heilan á pönnuna. Bragðbætið með salti og pipar. Saxið steinseljuna og setjið á pönnuna ásamt hvítvíni og loks smjöri. Hellið yfir réttinn.
MeðlætiSoðnar kartöflur og/eða brauð henta vel með þessum rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/397/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










