Svínasnitzel með gráðaostahjúp

Hráefni
» 800 g svínasnitzel (eða svínahnakki)
» 100 g gráðaostur (lítið stykki)
» salt og pipar
» 3 msk. matarolía til steikingar
» Steiktar fennikkukartöflur
» 400 g kartöflur, hráar
» 1 stk. fennikka
» 2 stk. gulrætur, stórar
» 50-100 g smjör
» 1-2 dl kjúklingsoð
» 8 msk. hjartahnetur (cashewhnetur)
» 3-4 msk. matarolía
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Steikið kjötið í 6-7 mín., snúið af og til, bragðbætið með salti og pipar. Skerið gráðaostinn í bita og setjið ofan á kjötið. Stingið undir grillið í bakarofninum og gratinerið.

Steiktar fennikkukartöflur

Skerið kartöflurnar í sneiðar, fennikka og gulrætur eru skornar gróft. Hitið olíuna vel, steikið kartöflusneiðarnar í 2-3 mín. ásamt grænmetinu. Steikið áfram í 2-3 mín., setjið smjörið út á pönnuna, hellið kjúklingasoðinu yfir og sjóðið niður. Hjartahneturnar fara út í undir lokin.

Annað meðlæti

Gróft brauð hentar með þessum rétti.

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar