Svínafilet með grænum pipar og appelsínusósu

Hráefni
» 800 g svínafilet (fjórar 200 g steikur)
» 4 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Pipar- og appelsínusósa
» 100 g sykur
» 1/2 dl vatn
» 1/2 dl hvítvínsedik
» 4 dl appelsínuþykkni
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og
» 1/2 Knorr-teningur)
» 1 msk. grænn pipar, niðurlagður
» 6-7 msk. rúsínur
» 8 msk. furuhnetur
» 250 g sykurbaunir
» 2 stk. appelsínur
» 4 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» Meðlæti
» 12-16 stk. litlar kartöflur

Fyrir 4

Aðferð

Steikið kjötið í olíunni, bragðbætið með salti og pipar. Stingið inn í 200°C heitan ofn í 10 mín. Takið úr ofninum, setjið á diska, hellið sósunni yfir og berið fram með soðnum eða steiktum kartöflum.

Pipar- og appelsínusósa

Sjóðið saman sykur og vatn í karamellu, hellið edikinu yfir ásamt appelsínusafanum og kjúklingasoðinu. Myljið græna piparinn, setjið síðan saman við ásamt rúsínum, furuhnetum og sykurbaunum, sjóðið allt í 3-5 mín. Þykkið með sósujafnara og sjóðið áfram í 1-2 mín. Flysjið appelsínurnar, skerið í báta og setjið saman við sósuna þegar hún er borin fram.

Meðlæti

Soðnar eða steiktar kartöflur eru bornar fram með réttinum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar