Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Svínahnakki með estragonsoðsósu
- Hráefni
- » 800 g svínahnakki (fjórar sneiðar)
- » 3 msk. matarolía
- » salt og pipar
- » Estragonsoðsósa
- » 300 g kartöflur, hráar
- » 2 stk. gulrætur, stórar
- » 1 bakki smámaís (100 g)
- » 100 g strengjabaunir
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 4 stk. hvítlauksrif
- » 3 msk. estragon, ferskt (eða
- » 1 msk. þurrkað)
- » 2 msk. sítrónusafi
- » 4 dl kjúklingasoð (vatn og
- » 1 Knorr-teningur)
- » 2-3 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
- » 3-4 msk. matarolía
Fyrir 4
Aðferð
Brúnið steikurnar í heitri olíu, kryddið með salti og pipar. Stingið inn í 200°C heitan ofn í 8-10 mín. Leggið síðan ofan á grænmetið.
EstragonsoðsósaFlysjið kartöflurnar og skerið í teninga. Brúnið síðan í heitri olíu, kryddið með salti og pipar. Skerið gulrætur, smámaís, strengjabaunir og rauðlauk í sneiðar, saxið hvítlaukinn. Bætið grænmetinu saman við kartöflurnar og brúnið á pönnu. Hellið síðan sítrónusafa, kjúklingasoði og estragonlaufum yfir, þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara og sjóðið áfram í 2-3 mínútur.
Annað meðlætiGróft brauð er borið fram með þessum rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/400/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









