Steikt svínarif í rauðvíns- og beikonsósu

Hráefni
» 6 stk. svínarif, 800-1000 g alls, skorin í tvennt
» 3-4 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Rauðvíns- og beikonsósa
» 100-150 g beikonstrimlar
» 100 g kartöflur
» 1-2 stk. laukur
» 6 stk. hvítlauksrif
» 200 g sveppir
» 150 g skinkustrimlar
» 1 tsk. timian
» 1 tsk. oregano
» 3-4 dl rauðvín, óáfengt
» 50-100 g smjör
» 1-2 msk. matarolía
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Brúnið svínarifin í heitri olíu á pönnu, kryddið með salti og pipar. Stingið í 220°C heitan ofn í 15-18 mín. Leggið síðan ofan á sósuna og meðlætið þegar borið er fram.

Rauðvíns- og beikonsósa

Sneiðið hráar kartöflurnar, óflysjaðar. Skerið lauk og sveppi í sneiðar, saxið hvítlaukinn. Hitið olíuna, brúnið beikonið og síðan annað grænmeti, hvítlaukinn og skinkustrimlana. Steikið allt í 3-4 mínútur, bætið þá kryddinu saman við ásamt rauðvíni. Sjóðið áfram í 6-9 mínútur, þá er smjörið sett saman við. Bragðgætið með salti og pipar ef þurfa þykir.

Annað meðlæti

Borið fram með soðnum kartöflum, grófu brauði eða fersku salati.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar