Reyktar svínakótilettur með piparrótarmeðlæti

Hráefni
» 800-1000 g svínakótilettur, reyktar
» 3 msk. matarolía
» Piparrótarmeðlæti
» 18-20 stk. perlulaukur
» 2 stk. epli, græn
» 250 g spergilkál (fryst)
» 2-3 msk. piparrót (maukuð í pakka)
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og
» 1/2 Knorr-teningur)
» 4 dl rjómi
» 1 msk. sinnep, sætt
» 2 msk. sósujafnari
» salt og pipar
» 2-3 msk. matarolía
» Annað meðlæti
» 200 g pasta

Fyrir 4

Aðferð

Reyktu svínakótiletturnar steiktar í 6-8 mín í heitri olíunni, snúið reglulega við. Setjið ofan á piparrótarmeðlætið.

Piparrótarmeðlæti

Skerið perlulauk í tvennt og eplin í teninga. Brúnið laukinn í olíu, bætið eplateningunum út í og síðan spergilkáli, piparrótarmauki og kjúklingasoði. Látið sjóða, setjið rjómann saman við og sinnepið. Þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara, sjóðið áfram í 1-2 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar ef vill.

Annað meðlæti

Sjóðið pasta skv. leiðbeiningum á pakka.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar