Ungnauta entrecôte í pestósósu

Hráefni
» 800 g ungnauta entrecôte (fjórar 200 g steikur)
» 3 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Pestósósa með furuhnetum
» 4 msk. pestómauk, grænt
» 1 dl hvítvín, óáfengt
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
» 200 g sykurbaunir
» 8 msk. furuhnetur
» 2-3 stk. tómatar
» 2 dl rjómi
» salt og pipar
» 80 g parmesanostur, heill
» Meðlæti
» 200 g pasta

Fyrir 4

Aðferð

Steikið kjötið í heitri olíu í 6-8 mínútur, snúið af og til, bragðbætið með salti og pipar. Setjið á miðja diska, leggið meðlætið yfir og þunnar sneiðar af parmesanosti þar yfir.

Pestósósa með furuhnetum

Brúnið furuhneturnar á heitri, þurri pönnu. Setjið pestómauk, hvítvín, kjúklingsoð og sykurbaunir í pott og sjóðið við vægan hita í 2 mínútur. Bætið furuhnetum og rjóma saman við, sjóðið í aðrar tvær mínútur. Sneiðið tómatana og setjið sneiðarnar í sósuna rétt áður en rétturinn er borinn fram.

Meðlæti

Sjóðið pasta skv. leiðbeiningum á pakka.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar