Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Ungnautafilet með oreganosósu
- Hráefni
- » 800 g ungnautafilet (fjórar 200 g steikur)
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Oreganosósa
- » 200 g perlulaukur
- » 200 g sveppir
- » 4 msk. sykur
- » 4 dl nautakjötsoð (vatn og
- » 1 Knorr-teningur)
- » 4 msk. steinselja, fersk
- » 1 msk. oregano
- » 4 msk. smjör
- » 2 msk. sósujafnari
- » 3 msk. matarolía
- » Meðlæti
- » 4 stk. bökunarkartöflur
Fyrir 4
Aðferð
Steikið kjötið í heitri olíu í 4 mín. á hvorri hlið.
OreganosósaSkerið perlulaukinn í tvennt, sneiðið stærstu sveppina. Brúnið í heitri olíu. Stráið sykri yfir og brúnið. Þá er soðinu hellt yfir ásamt kryddi, soðið í 3-4 mínútur. Þykkið með sósujafnara og setjið smjörið saman við. Sjóðið áfram í eina mínútu eða svo. Setjið steikurnar á miðja diska, sósu og meðlæti yfir.
MeðlætiBakaðar kartöflur eiga vel við þennan rétt. Bakið þær við 180-200°C í 45-60 mín., eftir stærð.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/407/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










