Ungnautafilet með papriku og sætri chilisósu

Hráefni
» 800 g ungnautafilet (fjórar 200 g steikur)
» 3 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Papriku- og chilisósa
» 4 stk. paprika, blandaðir litir
» 4 stk. hvítlauksrif
» 2-3 msk. appelsínumarmelaði
» 4 dl kjúklingasoð (vatn og
» 1 Knorr-teningur)
» 1 dl chilisósa, sæt (Sweet Chili for Chicken)
» 2-3 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» 1-2 msk. matarolía
» Meðlæti
» 4 stk. bökunarkartöflur

Fyrir 4

Aðferð

Steikið kjötið á báðum hliðum í 5-7 mínútur. Skiptið á diska. Berið fram með sósu og bökuðum kartöflum eða grófu brauði.

Papriku- og chilisósa

Skerið paprikurnar í teninga, saxið hvítlauksrifin. Steikið hvort tveggja í heitri olíu í 1-2 mínútur. Hrærið marmelaði, kjúklingasoði og chilisósu saman við, sjóðið í aðrar tvær mínútur. Þykkið með sósujafnara, sjóðið áfram í eina mínútu. Setjið yfir steikurnar.

Meðlæti

Gróft brauð og bakaðar kartöflur eiga vel við þennan rétt. Bakið kartöflurnar við 180-200°C í 45-60 mín., eftir stærð.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar